30. Júlí 2010 Fólk farið að streyma á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri
Fólk er farið að streyma á Færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri sem haldnir eru um verslunarmannahelgina. Mikil stemming er fyrir hátíðinni og veðrið með besta móti og byrjar dagskráin í kvöld af fullum krafti.
Á morgun er síðan landsleikur milli Færeyja og Íslands og eiga Íslendingar harma að hefna síðan í fyrra er þeir töpuðu naumlega. Eivör stígur síðan á Svið annað kvöld ásamt fylgdarfólki og þar verður dansað á færeyskan máta alla helgina.
Skráð af: Reynir Már Sigurvinsson |