21. Júlí 2010 350 manns á Skötumessu í Garðinum í gærkvöldi
350 manns á Skötumessu í Garðinum í gærkvöldi
Upphafsmenn að skötuáti á Þorláksmessu að sumri er Hrútvainafélagið Örvar á Suðurlandi sem byrjaði á slíku í upphafi þessarar aldar á Stokkseyri.
Hrútavinir fjölmenntu í Garðinn í gærkvöldi á Skötumessu og færðu Ásmundi Friðrikssyni forystumanni messunnar hinn nýja fána Hrútavina. Hann þakkaði gjöfina og Hrútavinum að hafa byrjað á skötuáti að Þorláksmessu á sumri.
Hrútavinakórinn var stofnaður á staðnum og kom fram fyrsta sinni og söng með hinum 350 skötuveislugestum - "Fyrr var oft í koti kátt"- eftir Stokkseyringinn Friðrik Bjarnason og við ljóð Þorsteins Erlingssonar. Kórstjóri er Eyþór Arnalds og forsöngvari er Siggeiir Ingólfsson.
Þessi ferð var jafnframt er ein af sumarferðum Hrútavinafélagsins og á heimleiðinni var ekið um Suðurstrandarveg.
Skráð af: Björn Ingi Bjarnason |